Þegar saga loftslagsbreytinga Jarðar er skoðuð þá virðist allt benda til þess að hitastig Jarðar í náinni framtíð eigi eftir að verða mun meiri en búist er við, vegna áframhaldandi losun CO2 út í andrúmsloftið. Jeffrey Kiehl hjá NCAR lýsir í þessu myndbandi hver staðan gæti orðið ef ekki verður dregið úr losun á CO2 – en í lok þessarar aldar þá gæti styrkur þess verið orðinn svipaður og fyrir 30-100 milljónum ára – en þá var hitastig mun hærra en í dag.
Hitastig Jarðarinnar mun halda áfram að hækka næstu aldir og þúsaldir vegna hækkandi styrks CO2 í andrúmsloftinu. Samkvæmt Kiehl þá er jafnvægissvörun loftslags til lengri tíma litið um tvöfallt hærri en skammtímabreytingar gefa til kynna. Það sé vegna þess að loftslagslíkön eigi í erfiðleikum með að herma breytingar eins og bráðnun jökulbreiða – sem gerast á öldum eða þúsöldum og magna upp upprunalegu hlýnunina af völdum CO2.
Heimildir og tengt efni
Pistill Jeffrey Kiehl birtist í Science 2011 (ágrip): Lessons from Earth’s Past
Umfjöllun má finna á heimasíð NCAR: Earth’s hot past could be prologue to future climate
Tengt efni á loftslag.is
- Styrkur CO2 var hærri til forna
- Styrkur CO2 í sögulegu samhengi – 800 þúsund ára ferðalag í tíma á aðeins 3 mínútum
- Yfirlýsing frá breska jarðfræðafélaginu um loftslagsbreytingar
- Hvernig CO2 stjórnar hitastigi Jarðar
- CO2 – áhrifamesti stjórntakkinn
Leave a Reply