Hópurinn París 1,5 gerði úttekt fyrir tæpum tveimur vikum á stefnu stjórnmálaflokkanna í loftslagsmálum fyrir kosningarnar þann 29. október 2016 (sjá hér). Nú er búið að uppfæra stefnuna.
Fyrst verður rakin aðferðafræðin, þ.e. farið yfir þá þætti sem voru notaðir við loftslagsrýni flokkanna, fjallað um einkunnagjöfina og það hvernig við völdum stjórnmálaflokkana sem eru í úttektinni. Neðst er svo niðurstaða þessa mats og umræða.
Aðferðafræðin
Upphaflega var ákveðið að til að stjórnmálaflokkur kæmi til greina í þessari rýni þá yrði hann að hafa möguleika á að komast á þing (samkvæmt skoðanakönnunum). Í uppfærslunni fengu minni flokkar möguleika á að vera með, með því að senda okkur stefnu sína skipta niður í þá sjö liði sem sjá má hér neðar. Loftslagsstefnur eftirfarandi flokka voru rýndar, en Alþýðufylkingin er eini flokkurinn sem bættist við. Dögun var einnig í sambandi við okkur og fá plús í kladdann fyrir það, en sökum mannfæð þá höfðu þeir ekki tíma til að skrá niður ítarlega stefnu í loftslagsmálum, þó þeir hefðu glaðir viljað það.
- Björt Framtíð
- Framsókn
- Píratar
- Samfylkingin
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Viðreisn
- Vinstri Græn
- Alþýðufylkingin
Til að gefa flokkunum einkunn þá notuðum við kerfi þar sem við mátum sjö mismunandi þætti og gáfum þeim einkunn á bilinu 0-10, en misjafnt vægi er á milli þátta. Fjórir þættir fá einfalt vægi (mest 10 stig hver þáttur) og þrír þættir fá tvöfalt vægi (mest 20 stig hver þáttur) – í allt 100 stig mest. Einn þátturinn er á bilinu mínus 10 til plús 10, þannig að flokkar geta fengið mínus stig þar (mest 20, þar sem þetta er þáttur með tvöfalt vægi). Nánar er fjallað um hvern þátt hér á eftir.
Reynt var að finna stefnur flokkanna í loftslagsmálum á vefsíðum þeirra, ef ekkert kom þar fram þá var ekki gert ráð fyrir að til væri opinber stefna um þann þátt hjá þeim stjórnmálaflokki í kosningunum 2016. Í uppfærslunni sendum við að auki öllum flokkunum tölvupóst þar sem við spurðumst nánar fyrir um þessa þætti – sumir svöruðu, aðrir ekki. Stundum var hægt að finna í stefnum flokkanna eitthvað sértækt þar sem rætt var um loftslagsmál, en stundum þurfti að grafa dýpra til að finna eitthvað fjallað um málin – beint eða óbeint. Við lögðum svo okkar mat á hvern þátt og hvað kom fram hjá hverjum flokki og gáfum einkunnir – sem endaði svo í þeirri einkunn sem hver flokkur fékk varðandi loftslagsmálin.
Þættirnir sjö eru eftirfarandi:
- Er flokkurinn með eða á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
- Hér var hægt að fá mínusstig, þar sem þeir flokkar sem taka einarða stefnu með olíuvinnslu fá mínus stig – þeir sem ekkert nefna um málið fá 0 og þeir sem taka einarða afstöðu gegn olíuvinnslu fá plús .
- Tvöfalt vægi – mest 20 stig og lægst mínus 20 stig
- Eru tölu- og/eða tímasett markmið varðandi samdrátt í losun CO2
- Því nánari markmið, því betra
- Tvöfalt vægi – mest 20 stig
- Er gert ráð fyrir kolefnisgjaldi eða hagrænum hvötum á losun gróðurhúsalofttegunda
- Tvöfalt vægi – mest 20 stig
- Tillögur um breytingu innviða til að taka á vandanum
- Til að mynda er hér verið að skoða tillögur til að flýta rafbílavæðingu og öðrum breytingum innviða til að taka fyrr á vandanum
- Einfalt vægi – mest 10 stig
- Tillögur varðandi endurheimt votlendis og skógrækt
- Almennar tillögur varðandi þessa þætti
- Einfalt vægi – mest 10 stig
- Flokkur og/eða frambjóðendur hafa tekið málið upp í aðdraganda kosninga
- Ef einhverjir frambjóðendur eða flokkar hafa sett þetta mál á oddinn með því að fjalla um það á opinberum vettvangi
- Einfalt vægi – mest 10 stig
- Annað almennt um loftslagsmál
- Skoðuðum aðra þætti sem flokkarnir töldu vert að nefna varðandi loftslagsmálin og reyndum að meta það á hlutlægan hátt – þarna gátu flokkarnir skorað aukastig
- Einfalt vægi – mest 10 stig
Niðurstaða
Loftslagsstefnur flokkanna voru rýndar og einkunnir gefnar samkvæmt fyrrgreindum forsendum. Eftirfarandi eru tenglar á úttekt hvers flokks fyrir sig, ásamt einkunnum (innan sviga):
- Björt Framtíð (6,0)
- Framsókn (0,4)
- Píratar (8,5)
- Samfylkingin (5,4)
- Sjálfstæðisflokkurinn (-0,1)
- Viðreisn (4,1)
- Vinstri Græn (6,9)
- Alþýðufylkining (5,4)
Sex flokkar standast prófið eins og staðan er í dag og eru Píratar með lang metnaðarfyllstu stefnuna. Lítið vantar upp á hjá Viðreisn að standast matið, en bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn eru mjög langt frá því og munar mestu um stefnuleysi varðandi minnkandi losun, sem og vilji þeirra til að vinna olíu á Drekasvæðinu.
Umræður
Við í París 1,5 hópnum viljum gjarnan hvetja stjórnmálaflokka og frambjóðendur til að halda áfram að taka þetta mikilvæga mál á dagskrá og ekki bara sem örfá atriði í stefnuyfirlýsingum, heldur sem eitt af aðalatriðum hjá öllum flokkunum enda skipta loftslagsmál miklu máli. Ef við göngum ekki vel til verks í þessum efnum, þá skipta öll hin málin miklu minna máli – því við erum hluti af borgurum jarðarinnar og við þurfum öll að gera okkar til að minnka kolefnisfótspor af mannavöldum, því fyrr sem við byrjum þá mikilvægu vinnu, því betra.
Viðbót: Við fengum síðbúið svar frá Húmanistaflokknum, en forsvarsmenn hans sendu okkur útlistun á þeirra stefnu út frá liðum 1-7 hér að ofan (sjá hér). Til að gera langa sögu stutta, þá stenst loftslagsstefna Húmanista matið og hefðu þeir fengið um 5,7 í einkunn samkvæmt lauslegu mati.
Leave a Reply