Þess vegna hækka gróðurhúsalofttegundir hitastig

Í þessu myndbandi frá ChangingClimates er á einfaldan hátt farið yfir það hvers vegna gróðurhúsalofttegundir hafa áhrif á hitastig. Reynt er að lýsa eðli gróðurhúsalofttegunda á leikrænan hátt, það má spyrja sjálfan sig hvernig það tekst til. Efnislega er innihaldið þó fróðlegt hverjum þeim sem langar að kynna sér eðli gróðurhúsalofttegunda á einfaldan hátt. Eftirfarandi lýsing er við myndbandið á YouTube:

Scott Denning, við Loftslagsvísindadeild Ríkisháskólans í Colorado, útskýrir á einfaldan hátt eðli og eiginleika sameinda gróðurhúsalofttegundanna og hvernig þær fanga hita í andrúmsloftinu.

Tengt efni af Loftslag.is:

Athugasemdir

ummæli

Tags: ,

About Sveinn Atli

Sveinn Atli: Fjölskyldumaður og áhugamaður um loftslagsmál.