Stutt myndband um þau öfl sem eru að baki hitastigi Jarðar. Hvaða öfl “ýta” hitastiginu upp á við og hvaða öfl “ýta” hitastiginu niður á við, ef svo má að orði komast. Ein af þeim sem stendur á bak við þetta myndband heldur úti fróðlegu bloggi, Climatesight.org. Af YouTube-síðu myndbandsins má lesa eftirfarandi lýsingu á myndbandinu:
Þegar litið er á graf af hitastigi Jarðar, þá sjáum við að það er allt annað en stöðugt. Hnattræn hlýnun, vegna losunar mannanna af m.a. koldíoxíði, er álitið hækka hitastig plánetunnar….af hverju lítur grafið þá svona út?
Tengt efni á loftslag.is:
- Hugleiðingar Carl Sagan um Jörðina
- Kaupmenn vafans
- Fyrirsagnir um loftslagsmál
- Stephen Hawking og Carl Sagan um gróðurhúsaáhrifin
Leave a Reply