Eitt af þeim atriðum sem kom fram í hinu svokallaða Climategate máli á sínum tíma var tölvupóstur þar sem Dr. Ben Santer var mjög harðorður gagnvart öðrum vísindamanni. Hann orðaði það þannig honum þætti það mjög freystandi að “beat the crap out of Pat Michaels” (ísl. “berja Pat Michaels í klessu”). Pat Michaels er loftslagsvísindamaður sem vinnur m.a. fyrir olíuiðnaðinn og “efast” um að hlýnun jarðar af mannavöldum sé mikil. Þeir “félagar” tókust loks á, eins og sést í þessu þriðja myndbandi sem við sýnum frá áheyrnafundi um loftslagsmál, sem fram fór á vegum bandaríska þingsins.
En hvernig fór þessi bardagi svo, gjörið svo vel, dæmið sjálf.
Tengt efni á loftslag.is:
- Vitnisburður vísindamanna (2. myndbandið frá áheyrnarfundinum)
- Gorgeirinn og vísindamaðurinn (1. myndbandið frá áheyrnarfundinum)
- Climategate
- Fyrirlestur Dr. Richard Alley – CO2 – áhrifamesti stjórntakkinn
- Sýna gervihnattamælingar hækkandi hitastig?
- 10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun
Leave a Reply