Viðauki – Hefur Jörðin kólnað?

thumb_potholer_vidauki

Endurbirting – kannski rétt að hafa viðaukan með, þar sem við endurbirtum fyrra myndbandið fyrir stuttu síðan, sjá hér.

Ekki leið nema örstutt stund frá síðasta myndbandi Potholer54, þar til honum fannst hann knúinn til þess að koma með viðauka við það. Síðasta myndband hans fjallaði hvort að Jörðin hafi kólnað “Hefur Jörðin kólnað?” og þar velti hann m.a. fyrir sér þeirri mýtu sem stundum kemur fram í umræðunni, að Jörðin hafi kólnað síðan 1998, ásamt því hvort aðrar plánetur hafi hlýnað eða ekki. Nánast strax í kjölfar hans síðasta myndbands, birti Daily Mail frétt, þar sem því var haldið fram m.a. í fyrirsögninni að Phil Jones teldi ekki að jörðin hefði hlýnað frá 1995. Þessi fullyrðing Daily Mail er gerð eftir viðtali BBC við Phil Jones, en heldur þessi fullyrðing Daily Mail vatni? Enn og aftur er mikilvægi heimilda Potholer54 ofarlega í huga. Eftirfarandi er hans eigin lýsing á myndbandinu:

Hið fullkomna dæmi um það sem ég var að segja í síðasta myndbandi birtis fljólega eftir að ég setti það inn. Internetið varð yfirfullt af tilvitnunum í Prófessor Phil Jones, þar sem hann átti að hafa sagt að það hafi ekki verið hnattræn hlýnun síðan 1995. En er það, það sem hann sagði í raun? Enn og aftur, þá verðum við að fara til grunnheimildanna – hans eigin orða – frekar en að láta slúður internetsins, sem er byggt á túlkun á orðum hans, ráða ferðinni. Ef við skoðum grunnheimildina, þá er sagan allt önnur. Í raun, þá urðu Phil Jones og teymi hans vör við hlýnun síðan 1995. Í þessu myndbandi skoða ég heimildirnar og finn út úr því hvers vegna dagblöðin gerðu þessa vitleysu. Dæmin um “tölfræðilega marktæki” í þessu myndbandi voru sett saman með hjálp frá tölfræðingi. Ég er jarðfræðingur, ekki tölfræðingur, þannig að ef það eru tölfræðingar þarna úti sem telja að dæmin séu ófullnægjandi eða þarfnist lagfæringa, ekki hika við að lát mig vita.

Ítarefni:

Athugasemdir

ummæli

About Sveinn Atli

Sveinn Atli: Fjölskyldumaður og áhugamaður um loftslagsmál.