Við á loftslag.is erum stoltir að kynna nýjustu afurðina í samstarfi loftslag.is og Skeptical Science. Það er leiðarvísirinn Efasemdir um hnattræna hlýnun – Hinn vísindalegi leiðarvísir, sem er íslensk þýðing á The Scientific Guide to Global Warming Skepticism sem John Cook og félagar á Skeptical Science tóku saman.
Við ritstjórar á loftslag.is byrjuðum á þýðingunni einhvern tíma í febrúar á þessu ári og því hefur það tekið langan tíma að þýða leiðarvísirinn. Með dyggri aðstoð góðra manna þá tókst það að lokum og við viljum sérstaklega þakka þeim Halldóri Björnssyni og Emil H Valgeirssyni sem lásu yfir textann og bættu málfar og orðaval.
Á næstu vikum má búast við að eitthvað af efni þessa leiðarvísis birtist hér á loftslag.is, en einnig má hlaða niður pdf skjali af leiðarvísinum hér í heild, með því að smella á myndina hér til hægri.
Við skulum byrja á einum kafla hans.
Hvað er efahyggja?
Vísindalegur efi er heilbrigður. Vísindleg nálgun er grundvölluð á efa. Eitt einkenni heilbrigðrar efahyggju er að vega og meta sönnunargögnin í heild sinni áður en komist er að niðurstöðu. Annað er upp á teningnum þegar rök efasemdamanna um loftslagsbreytingar eru skoðuð. Oft á tíðum velja þeir úr þau gögn sem styðja fyrirfram gefna niðurstöðu, en líta framhjá þeim gögnum sem falla ekki að henni. Þetta telst ekki til efasemda, heldur nefnist það að hundsa vísindi og staðreyndir.
Þessi leiðarvísir sýnir gögn sem benda til þess að athafnir manna valdi hnattrænni hlýnun. Einnig er skoðað hvernig mótbárur efasemdamanna um loftslagsbreytingar gefa villandi mynd með því að sýna einungis sérvalin brot af heildarmyndinni.
Við kíkjum á næsta kafla af Efasemdir um hnattræna hlýnun – Hinn vísindalegi leiðarvísir á morgun.
Ítarefni
Sjá ýmsar útgáfur á leiðarvísinum á Skeptical Science: Scientific Guide to Global Warming Skepticism
Bloggfærsla um íslensku útgáfuna má finna hér: Icelandic translation of The Scientific Guide to Global Warming Skepticism
Leave a Reply