Fyrirhugað er Þorraþing Veðurfræðifélagsins, en hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá félaginu af heimasíðu félagsins. Margt áhugavert í boði. Forsíðumyndin er klippt úr mynd Guðrúnar Nínu sem heldur fyrirlestur um vindröst við Hvarf.
—
Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður sett fimmtudaginn 11. febrúar kl. 13:00 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9. Veðurfræðifélagið er opið öllum áhugamönnum um veður og veðurfræði og þingið sömuleiðis. Þema þorraþingsins er „veður og jöklar“ en einnig verða flutt almenn veðurerindi.
Dagskrá þingsins:
- 13:00 Inngangur
- 13:05 Jöklar á Íslandi: jöklafræði, gagnaöflun og rannsóknir – Finnur Pálsson
- 13:20 Einfalt líkan til þess að reikna afrennslisaukningu frá jöklum í hlýnandi loftslagi – Tómas Jóhannesson
- 13:35 Orkubúskapur á íslenskum jöklum: mælingar og dæmi um niðurstöður – Sverrir Guðmundsson
- 13:50 Afkoma Hofsjökuls 2008-2009 – Þorsteinn Þorsteinsson
- 14:05 Samband veðurathugana í Eyjafirði og afkomumælinga smájökla í Svarfaðardal – Sveinn BrynjólfssonKaffihlé
- 14:50 Rek hafíss í Austur-Grænlandsstraumi sunnan Scoresbysunds – Ingibjörg Jónsdóttir
- 15:05 Ósonmælingar í Reykjavík 1957-2009 – Árni Sigurðsson
- 15:20 Óveður – aðferð til að meta styrk og afleiðingar í óveðrum – Einar Sveinbjörnsson
- 15:35 The Bergen Shelter – Marius O. Jonassen
- 15:50 Hvasst við Hvarf – Guðrún Nína Petersen
—
Í leiðinni er rétt að minna áhugafólk um loftslagsbreytingar á áhugaverðan fyrirlestur um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar sem Halldór Björnsson heldur laugardaginn 6. febrúar – Sjá Facebook síðu.
Leave a Reply