Í þætti sem sýndur verður á RÚV fimmtudaginn 7. júlí klukkan 19:35 verður verður gerð tilraun til að fjalla um hvað við vitum um loftslagsbreytingar – eða sannleikann, hvað sem það nú er, um loftslagsbreytingar. Á vef RÚV stendur eftirfarandi um þáttinn og efni hans:
Breskur fréttaskýringaþáttur um loftslagsbreytingar vegna hnattrænnar hlýnunar. Á liðnum árum hefur hart verið deilt um loftslagsbreytingar og vísindin sem notuð eru til að mæla þær og meta. Í þættinum er leitað svara við því hvað við vitum í rauninni um loftslagið og áhrif þess á okkur. Þótt yfirvöld, vísindamenn og baráttufólk haldi því fram að loftslagið í heiminum sé að breytast er eins og margir trúi því hreinlega ekki að hnattræn hlýnun sé staðreynd. Talað er við vísindamenn sem eru á öndverðum meiði um málið og athugað hvað þeir geta verið sammála um og þar kemur sitthvað á óvart.
Eftir að hafa kynnt mér þetta lítillega, þá skilst mér að það verði rætt við þá John Christy og Björn Lomborg frá hlið “efasemdamanna”, en m.a. eiga þeir Bob Watson and Bob Ward að koma fram fyrir hönd þeirra sem telja að gróðurhúsavandinn sé raunverulegur, sjá nánar á vef BBC. Einnig er rætt við fleiri, m.a. loftslagsvísindamanninn Michael Mann, svo einhver sé nefndur. Þetta er einungis 30 mínútna þáttur og er því erfitt að sjá fyrir sér að spurningum varðandi þessi mál verði svarað svo vel sé, en þetta getur væntanlega orðið fróðlegt. Hér undir má sjá stutt brot úr þættinum (reyndar u.þ.b. 1/6 úr honum, þar sem um stuttan þátt er að ræða), en þarna er komið inn á villu IPCC varðandi jöklana í Himalaya og hið svokallað climategatemál, vonandi ná þeir að útskýra það nánar í þættinum – spurning líka hvort þeir nefni augljósar villur “efasemdamanna” í leiðinni..? Merkilegt reyndar að þátturinn virðist hafa verið kallaður “What’s up with the weather?” í Bretlandi, sem er strax dáldið merkilegt, miðað við að umfjöllunarefnið eru loftslagsbreytingar. En allavega, þá mun ég horfa á þáttinn og vonandi gefst mér tækifæri á að skrifa eitthvað um hann síðar.
Tengt efni á loftslag.is:
- Climategate – Nú ár er liðið…skandallinn sem ekki varð
- Tag – Climategate
- Mælingar staðfesta kenninguna
Áhugavert -verst að ég missti af því. RÚV hlýtur að endurtaka þetta við tækifæri 🙂