Þó loftslagsmýtur séu á undanhaldi, þá geta þær birst á ýmsa vegu og jafnvel hjá því fólki sem vill raunverulega draga úr losun CO2 út í andrúmsloftið. Það er einmitt oft erfitt að gera sér grein fyrir hvað er satt og rétt í þessum efnum og því mjög hressandi að horfa á myndband þar sem loftslagsvísindamaðurinn Dr Adam Levy fer yfir nokkrar algengar loftslagsmýtur sem þvælast stundum fyrir í umræðunni.
Tag: Myndbönd
-

Með aðgerðum þá má halda aftur af sjávarstöðubreytingum
Í þessu myndbandi þá ræða nokkrir vísindamenn um bráðnun jökulhvelsins á Suðurskautinu. Með því að takmarka hækkun hitastigs þá má hugsanlega halda aftur af sjávarstöðubreytingum, eða hvað? Fróðlegt myndband þar sem nokkrir vísindamenn velta fyrir sér sviðsmyndum framtíðarinnar varðandi sjávarstöðubreytingar og tengingu við bráðnun á jökla á Suðurskautinu.
Þetta myndband er úr smiðju Peter Sinclair sem hefur gert myndbönd undir heitinu Greenman3610 á YouTube og hefur oft verið vísað í þau hér á Loftslag.is.
Tengt efni á loftslag.is
-

Eru rafbílar alveg örugglega grænir?
Áhugavert myndband frá Potholer54, þar sem hann fer yfir nýlegar fullyrðingar Björns Lomborg um rafbíla. Eins og búast mátti við, þá er Björn í besta falli á hálum ís með sínar fullyrðingar.Potholer54 heitir raunverulega Peter Hadfield og er jarðfræðingur og vísindablaðamaður. Hann hefur í mörg ár haldið úti Potholer54 rásinni á Youtube þar sem hann hefur m.a. tekið upp allskyns mýtur og fjallað um þær á málefnalegan hátt.
Tengt efni á loftslag.is:
- Potholer tag á loftslag.is
- 10 loftslagsmýtur afhjúpaðar
- Er búið að staðfesta kenningar Svensmarks?
- “Við erum á leið inn í litla ísöld!!” – Jahérna, getur það nú verið…lítum á vísindin…
- Ósérhæfðir sérfræðingar
- Áhrif olíuleka á hafstrauma og endalok snjókomu…eða hvað!
- “Tvöföldun á styrk CO2 þýðir aðeins 1,64°C hækkun hitastigs…” eða kannski ekki
-

10 loftslagsmýtur afhjúpaðar
Fróðlegt myndband frá Potholer54, þar sem hann, enn og aftur, kryfur loftslagsmýtur til mergjar. Hann gerði þetta myndband til að draga saman 10 helstu mýtur sem hann hefur skoðað í fyrri myndböndum á síðustu 10 árum.Potholer54 heitir raunverulega Peter Hadfield og er jarðfræðingur og vísindablaðamaður. Hann hefur í mörg ár haldið úti Potholer54 rásinni á Youtube þar sem hann hefur m.a. tekið upp allskyns mýtur og fjallað um þær á málefnalegan hátt.
Tengt efni á loftslag.is:
- Potholer tag á loftslag.is
- Er búið að staðfesta kenningar Svensmarks?
- “Við erum á leið inn í litla ísöld!!” – Jahérna, getur það nú verið…lítum á vísindin…
- Ósérhæfðir sérfræðingar
- Áhrif olíuleka á hafstrauma og endalok snjókomu…eða hvað!
- “Tvöföldun á styrk CO2 þýðir aðeins 1,64°C hækkun hitastigs…” eða kannski ekki
-

Fimm einkenni loftslagsafneitunar
Ekki eru allir sem treysta vísindamönnum til að fræða okkur um loftslagsmálin og hver staða okkar er. Þeir eru sumir hverjir í afneitun, vísvitandi eða ómeðvitað. Hér fyrir neðan má sjá myndband sem útskýrir fimm dæmigerð einkenni loftslagsvísindaafneitunnar (og vísindaafneitunar yfir höfuð):
Gervisérfræðingar (e.Fake experts) – loftslagsafneitarar eru duglegir að vísa í svokallaða gervisérfræðinga. Margir eru til kallaðir, sumir á jaðrinum að flokkast sem loftslagsvísindamenn en sumir bara alls ekki. Sem dæmi má nefna dr. Tim Ball. Hann var upphaflega “vísindamaður” sígarettuiðnaðarins en hefur undanfarna áratugi sérhæft sig í að vera sérfræðingur loftslagsafneitunariðnarins.
Rökvillur (e. Logical fallacies) – Fjölmörg dæmi má nefna. Eitt sem stundum er notað, er að af því að hlutfall CO2 í andrúmsloftinu er lítið (mælt í ppm – part per million), þá hafi það lítil áhrif á loftslag. Það er auðvitað fjarri lagi, enda er það styrkaukningin en ekki magnið sem veldur hlýnuninni.
Ómögulegar væntingar (e. Impossible expectations) – Að hamra á óvissunni, þ.e. að af því að vísindamenn vita ekki nákvæmlega 100% allt um loftslagsbreytingar, þá þurfi ekki að gera neitt í vandanum – allavega ekki fyrr en menn vita þetta 100% (sem verður aldrei).
Sérvalin gögn (e. Cherry picking) – Þetta er líklega algengasta afneitunin núna, þ.e. menn velja sér gögn sem henta hverju sinni. Einn daginn er hafísinn búinn að vaxa í viku, það er því að kólna. Heitt er í neðri lögum lofthjúpsins miðað við sama dag fyrir ári síðan, því er að kólna. Hér skiptir leitni og önnur gögn ekki máli, nema þá sjaldan það styðji afneitunina á einn eða annan hátt (en svo viku síðar er ekkert að marka þau gögn).
Samsæriskenningar (e. Conspiracy Theories) – Nú auðvitað eru vísindamenn bara allir (þ.e. þessi 97% sem eru sammála um að jörðin sé að hlýna af mannavöldum) í einhverju samkrulli með að falsa gögn. Mörg þúsund vísindamenn í öllum löndum jarðarinnar eru semsagt svo skipulagðir og samstíga að þeir ná að falsa gögn til að plata almenning.
Tengt efni á loftslag.is
-

Miðlun upplýsinga um loftslagsbreytingar
Ný handbók um miðlun upplýsinga um loftslagsbreytingar kom út á vegum IPCC fyrir stuttu og er meðal annars afrakstur ráðstefnunnar “Expert meeting on Communication” sem IPCC hélt í Osló árið 2016.
Þó hlutverk skýrslunnar sé fyrst og fremst að fræða vísindamenn IPCC í hvernig best er að koma staðreyndum til almennings, þá getur verið áhugavert fyrir þá sem fjalla um loftslagmál sem og áhugasaman almenning að skoða skýrsluna.
Hér fyrir neðan er kynning á þeim 6 aðferðum sem rætt er nánar í handbókinni:
Aðferðirnar eru eftirfarandi (lauslega þýtt):
- Vertu örugg(ur) í miðlun upplýsinga
- Ræddu hinn raunverulega heim, ekki óhlutbundnar hugmyndir
- Tengdu við það sem skiptir máli fyrir þinn áheyrandahóp
- Segðu sögur af fólki
- Ræddu fyrst um það sem þú veist
- Notaðu sem besta sjónræna miðlun upplýsinga
Heimildir og ítarefni
Byggt á færslu á RealClimate
Einnig var umfjöllun um handbókina á Guardian, Communicating the science is a much-needed step for UN climate panel
Fyrirlestur um handbókina verður haldinn á netinu í næstu viku: Webinar: The IPCC and the science of climate change communication, Mon 5 Feb 3pm GMT
Tengt efni á loftslag.is
-

Hitinn í hæstu hæðum
Þeir sem fylgjast með breytingum á loftslagi vita að árið 2014 var það heitasta frá upphafi mælinga og að árið 2015 sló það met all rækilega. Nýjustu fréttir af hitastiginu það sem af er árinu 2016 eru sláandi.
Janúar 2016 var sá heitasti frá upphafi mælinga samkvæmt gögnum frá NASA, eða 1,14°C yfir meðalhitastigi áranna 1951-180. Það var þó aðeins forsmekkurinn af því sem febrúar bauð okkur upp á.
Febrúar 2016 var með mesta hitafrávik allra mánaða frá upphafi mælinga eða 1,35°C yfir meðalhita 1951-1980.

Mánaðargildi hnattræns hitafráviks samkvæmt NASA frá árinu 1880 til febrúar 2016. Sýnt sem frávik frá meðalhitastigi áranna 1951-1980. Rauða línan sýnir 12 mánaða hlaupandi meðaltal.
Mynd: Stephan Okhuijsen, datagraver.com.Vissulega er El Nino í gangi í Kyrrahafinu og er hann megin ástæða þess að met eru að falla núna. Sveiflur á milli El Nino (heitt) og La Nina (kalt) í kyrrahafinu eru almennt stærstu sveiflurnar sem hafa áhrif ofan á hina undirliggjandi hlýnun af völdum gróðurhúsalofttegunda. Þessi El Nino sem er nú í gangi er svipað öflugur og sá sem sló öll met árið 1998. Sá toppur er ekki eins merkilegur að sjá núna og fyrir nokkrum árum sem sýnir hversu mikil hin undirliggjandi hnattræna hlýnun er í raun og veru.
Hin undirliggjandi hlýnun sést hvað best ef skoðuð er leitni gagnanna.

Leitni hnattræns hitafráviks samkvæmt NASA. Mynd Tamino – tamino.wordpress.com. Eins og sést vel þá eru miklar sveiflur, en ef eingöngu væru sveiflur en ekki undirliggjandi hnattræn hlýnun, þá myndu metin ekki falla svona ár eftir ár, jafnvel þó El Nino væri í gangi.
Einhverjir vilja reyndar mæla hitastigið í neðri lögum lofthjúpsins með gervihnattamælingum, en jafnvel gervihnattamælingar sýna hnattrænt hitastig í hæstu hæðum:

Hnattrænt hitafrávik samkvæmt RSS. Mynd Tamino – tamino.wordpress.com. Ef einhver telur að það sé búið að vera óvenjulega kalt hér á landi miðað við þessi miklu met, þá er ástæða fyrir því. Þótt vissulega sé ekki jafn kalt og var í köldum árum tuttugustu aldar, þá er enn kuldafrávik í kringum landið og þá sérstaklega suður af landinu. Miðað við heita loftið sem er um mest allt norðurhvel jarðar, þá verður að teljast líklegt að hér hitni aftur á næstu misserum, þó ómögulegt sé að spá fyrir um það.

Yfirborðsgildi hnattræns hitafráviks fyrir febrúar 2016 samkvæmt NASA sýnt sem frávik frá meðalhitastigi áranna 1951-1980. Mynd: NASA/GISS Eins og sést þá var Norðurskautssvæðið óvenju heitt í febrúar. Það endurspeglast nokkuð vel í hafísútbreiðslu fyrir febrúar:

Hafísútbreiðsla noðurskautsins í febrúar 2016 samanborið við fyrri ár. Mynd NSIDC.org Við endum á góðu myndbandi eftir Peter Sinclair þar sem fjallað er um muninn á mælingum á hnattrænu hitastigi:
Heimildir og ítarefni
GISS Surface Temperature Analysis
February Smashes Earth’s All-Time Global Heat Record by a Jaw-Dropping Margin
February continues streak of record low Arctic sea ice extent
February breaks global temperature records by ‘shocking’ amount
Tengt efni á loftslag.is
-

Muller: Ég hafði rangt fyrir mér
Einn af þeim vísindamönnum sem var nokkuð hávær í umræðunni um loftslagsvísindi fyrir nokkrum árum og kalla mátti á þeim tíma efasemdamann um hnattræna hlýnun, er prófessor í háskólanum í Berkeley í Bandaríkjunum og heitir Richard Muller. Hann og samstarfsmenn hans skoðuðu gögn um yfirborðshita og ætlunin var að kanna hvort um raunverulega hlýnun væri að ræða eða hvort eitthvað væri til í því sem efasemdamenn segja að um sé að ræða kerfisbundna bjögun, í mælingum og leiðréttingum sem myndi falska hlýnun. Á tímabili var honum hampað sem hetju og eftir að í ljós kom að olíumilljarðamæringarnir Charles og David Koch voru að styrkja rannsóknina og að þekktir efasemdamenn voru að vinna í nánu samstarfi við Muller og félaga, þá vöknuðu vonir þeirra sem afneita hnattrænni hlýnun að hér myndi kenningin bíða afhroð.
Því kom það á óvart þegar Muller staðfesti eiðsvarinn fyrir framan þingnefnd Bandaríkjaþings að bráðabirgðaniðurstöður rannsókna hans bentu til þess að leitni hitastigs sé nánast sú sama og hjá öðrum stofnunum. Eftir því sem leið á verkefnið varð þetta skýrara, hnattræn hlýnun er raunveruleg. Fróðlegt var að fylgjast með því þegar hetja þeirra sem afneita loftslagsbreytingum varð að skúrki (sjá t.d. tengt efni á loftslag.is hér neðar).
Hér er áhugavert viðtal við hann, þar sem hann útskýrir hvað það var sem fékk hann til að skipta um skoðun og hvað það er sem sannfærði hann um að CO2 væri sökudólgurinn.
Ítarefni
Climate Denial Crock of the Week: Richard Muller: I Was Wrong on Global Warming
Heimasíða verkefnisins: Berkeley Earth
Tengt efni á loftslag.is
-

Earth 101
Við á loftslag.is viljum vekja athygli á góðu og fróðlegu verkefni sem Guðni Elísson hefur haft yfirumsjón með, en það kallast Earth 101. Fyrir rúmu ári síðan blés hann til málstofu þar sem hann fékk nokkra af fremstu loftslagsvísindamönnum heims í heimsókn og kvikmyndagerðamenn sem hafa verið að skrásetja afleiðingar loftslagsbreytinga, ásamt því að fjalla um hugsanlegar lausnir á vandanum.Á heimasíðu verkefnisins má meðal annars horfa á helstu atriði málstofunnar sem var í fyrra, mjög áhugaverðir fyrirlestrar.
Við höfum heyrt af því að verkefnið sé enn í gangi og að búið sé að festa áhugaverða fyrirlesara, en nánar um það síðar.
.
Tengt efni á loftslag.is -

Mýtublöðrur sprengdar
Hér má finna myndband sem Hank nokkur Green, gerði, þar sem hann eyðir tíu algengum mýtum á undir fjórum mínútum og geri aðrir betur.
Tengt efni á loftslag.is
